Já í alvöru talað, mér tókst að læsa mig úti heima hjá mér , eða
hurðinni minni tókst að læsa mig úti. Helvítis hurðin skellur
stundum í lás þegar maður lokar.
Ég náttúrulega bar út einsog vanalega í ógeðslega vondu veðri og
kulda, fór svo í kirkjuna og skúraði sem betur fer fór mammsan mín
með mér í bæði. Annars væri ég örugglega ennþá að.Við skulum ekki
gleyma að í morgun fór ég með strákana á sitthvorn staðinn.
Jæja fór í bankann svo í Nema Hvað , brunaði heim og sótti bækur
til að skila á bókasafnið, tökum það framm að klukkan var hálfa
mínutu í lokun og brjáluð´hálka úti, ok gat skilað bókunum og
fundið mér nýjar á mettíma, sótti stóra stírið á leikskólann
brunaði í búðina og verslaði smá.
Svo fór ég klifjuð af bókum mat og barni í gegnum skaflana sem
voru búnir að myndast hérna fyrir framan hús og heyrði þessi fögru
orð MAMMA ÞAÐ ER LÆST. það er alltí lagi mamma er með lykla í
vasanum vei eða hvað nei auðvitað voru þeir ekki í vasanum, það var
samt ílagi þar sem ég get farið inn um svalahurðina, hvur
andsk......auðvitað læsti ég henni þegar ég lokaði seinast ASNI. En
það var í lagi mamma var hvort sem er með aukalykil heima hjá
sér.
En nei auðvitað var ég búin að taka alla aukalyklana í eitt af
þeim skiptum sem ég hef læst mig úti áður
. Nú eru góð ráð dýr ég
er ekki að grínast ég fór og sparkaði ílskulega í hurðina og
labbaði á alla glugga, það var von þar sem viftan mín fyrir ofan
eldavélina er biluð opna ég alltaf gluggann í eldhúsinu til að
hleypa gufunni út JEYJ hann var ekki alveg læstur aftur, og með exi
og kúbeini tókst okkur pabba að spenna upp gluggann án skemmda og
ég gat látið Benedikt skríða inn HJÚKK
Þetta er allavega í síðasta skipti sem mig langar að koma heim
dauðþreytt og þurfa að standa í þessu veseni, þannig að Tobbi þitt
fyrsta verkefni þegar þú kemur heim er að tjónka við þessa læsingu
svo hún hætti að læsa mig úti
.
Annars var þetta bara fínn dagur 